Rannsóknir og fræði

Rannsóknir og fræði

Snorrastofa vinnur að rannsóknum í miðaldafræðum og sögu Borgarfjarðar og miðlar þekkingu með sýningum, alþjóðlegum ráðstefnum, málþingum, fyrirlestrahaldi, námskeiðum og útgáfu.

Ritmenning íslenskra miðalda - RÍM

Ritmenning íslenskra miðalda - RÍM

Meginmarkið RÍM-verkefnisins er að efla rannsóknir sem tengjast þeim stöðum á Íslandi þar sem ritmenning blómstraði á miðöldum. Rannsóknirnar munu m.a. tengjast fornleifafræði, sagnfræði, textafræði og bókmenntafræði…

Nánar
Goðafræðiverkefnið

Goðafræðiverkefnið

Snorrastofa hefur hrint af stað stóru rannsóknarverkefni um norræna goðafræði. Verkefnið er gríðarlega viðamikið og munu margir helstu fræðimenn í greininni, bæði íslenskir og erlendir, koma að vinnslu þess.

Nánar
Reykholtsverkefnið

Reykholtsverkefnið

Reykholtsverkefnið er þverfaglegt, alþjóðlegt miðaldarannsóknarverkefni á sviði bókmennta, fornleifafræði, landafræði og sagnfræði.

Nánar
Bókaútgáfa

Bókaútgáfa

Útgefin rit Snorrastofu

Nánar
Snorri í Ameríku

Snorri í Ameríku

Stjórnandi: Bergur Þorgeirsson

Bergur safnar gögnum í tengslum við uppruna Snorrasafns í byrjun fjórða áratugarins og mikilvægi Snorra og Reykholts fyrir norsk-íslensk tengsl, bæði í Noregi og Norður-Ameríku.

Fornaldarsögur Norðurlanda

Fornaldarsögur Norðurlanda

Stjórnandi: Bergur Þorgeirsson

Bergur rannsakar eðli og þróun fornaldasagna Norðurlanda. Brugðið er upp mynd af frásagnarfræðilegri og þematískri þróun fornaldarsagna og annarra skemmtisagna, m.a. í ljósi textatengsla og samspils lausamáls og kveðskapar í ólíkum gerðum þessara sagna.

Fornsagnanámskeið

Fornsagnanámskeið

Snorrastofa stendur fyrir fornsagnanámskeiði á hverjum vetri í samvinnu við Landnámssetrið í Borgarnesi og Símenntunarmiðstöðina í Borgarnesi. Veturinn 2019-2020 stendur Sturlufélagið einnig að námskeiðinu.

Nánar
Ljóðmælendur í Borgarfirði á 20. öld

Ljóðmælendur í Borgarfirði á 20. öld

Guðmundur Þorsteinsson á Skálpastöðum flutti erindi í röðinni, Fyrirlestrar í héraði, þriðjudaginn 14. mars 2017. Þar lagði hann fram drög að skrá um skáld í Borgarfirði, sem fengið hafa ljóðabækur útgefnar á 20. öld. Þar eru þó undanskildar bækur þeirra Guðmundar Böðvarssonar, Jóns Helgasonar, Magnúsar Ásgeirssonar, Snorra Hjartarsonar og Þorsteins frá Hamri. Skráin er ekki tæmandi og upplýsingar hennar ekki sannprófaðar. Snorrastofa tekur við ábendingum og leiðréttingum og uppfærir skrána þegar þurfa þykir.

Drög að skrá um ljóðskáld í Borgarfirði á 20. öld.