
Akurnesingar styðja Snorrastofu
Gengið var frá samkomulagi um stuðning Akraneskaupstaðar við Snorrastofu í Reykholti á aðalfundi Menningarráðs Vesturlands þann 16. apríl. Gunnar Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akraness og Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, undirituðu samkomulagið í húsnæði Snorrastofu í gamla Héraðsskólanum í Reykholti. Bæjarráð Akraness hafði áður samþykkt tillögu menningarmála- og safnanefndar bæjarins um samkomulag við Snorrastofu sem gildir árin 2008 – 2010. Framlag Akraneskaupstaðar til Snorrastofu mun verða um 2,3 milljónir í heild sinni á tímabilinu.
Í samkomulaginu er gert ráð fyrir samstarfi á milli Snorrastofu og Byggðasafnsins að Görðum sem snúa að sameiginlegum málefnum beggja staðanna. Jafnframt gerir samningurinn ráð fyrir að Snorrastofa standi fyrir viðburðum á Akranesi í tengslum við Vökudaga sem höfði sérstaklega til tengsla Akraness við Snorra Sturluson, en eins og kunnugt er var móðir Snorra frá Akranesi.
Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu
Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi
Opnunartímar Gestastofu
1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00
1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.