Íbúðir fyrir fræði- og listamenn

Íbúðir fyrir fræði- og listamenn

Stofnunin hefur til umráða gistirými með góðri vinnuaðstöðu fyrir fræði- og listamenn. Dvölinni fylgir aðgangur að interneti, bókhlöðu, með almennri vinnuaðstöðu.

Umsækjendur, sem fást við verkefni er snerta Snorra Sturluson, íslenskar miðaldir eða sögu og menningu Borgarfjarðar, njóta forgangs.

Verðlisti gistingar (pdf)

Í umsókn, sem sendist skriflega eða rafrænt til Snorrastofu, þarf að koma fram auk almennra upplýsinga um umsækjanda, að hverju viðkomandi hyggst vinna og hvaða tímabil sé heppilegast.

Senda umsókn

Íbúð í byggingu Snorrastofu

Íbúð í byggingu Snorrastofu

Íbúðin er hæð og loft undir súð, samtals 88,5 fermetrar. Á jarðhæðinni er stofa, eldhúskrókur, eitt svefnherbergi og baðherbergi, en á loftinu er vinnuaðstaða fyrir tvo og gistiaðstaða fyrir einn.

Í íbúðinni eru nauðsynlegustu húsgögn, elhúsáhöld, rúmföt og ræstibúnaður. Á baðherbergi er þvottavél. Þá er í öðrum hluta húsnæðis Snorrastofu bókasafn og vinnuaðstaða annarra gesta og starfsmanna Snorrastofu.

Skoða myndir
Stúdíó-herbergi í Héraðsskólahúsi

Stúdíó-herbergi í Héraðsskólahúsi

Tvö herbergi eru til leigu í gamla héraðsskólanum. Í hvoru þeirra er gistiaðstaða fyrir tvo með baðherbergi og aðgangi að sameiginlegu eldhúsi á hæðinni, stofu með sjónvarpi og  vinnuherbergjum.

Skoða myndir

Verðskrá

Gestaíbúð

Vika  40.000 kr.
Viðbótarvika 15.000 kr.


Herbergi í gamla héraðsskólahúsinu

Tveggja manna studioherbergi með baði,  og aðgangi að eldhúsi og stofu

Vika 25.000 kr.
Viðbótarvika 10.000 kr.



Leiguskilmálar

  1. Umsækjendur
    Gistirými Snorrastofu er ætlað innlendum og erlendum fræði- og listamönnum. Þeir njóta forgangs sem fást við þýðingar og rannsóknir á verkum Snorra Sturlusonar, íslenskum miðöldum og sögu og menningu Borgarfjarðar.
  2. Aðstaða
    Um er að ræða hæð og loft undir súð, samtals 88,5 fermetrar. Á hæðinni er stofa, eldhúskrókur, eitt svefnherbergi og baðherbergi, en á loftinu er vinnuaðstaða fyrir tvo og gistiaðstaða fyrir einn. Í íbúðinni eru nauðsynlegustu húsgögn, elhúsáhöld, rúmföt og ræstibúnaður. Á baðherbergi er þvottavél. Þá er í öðrum hluta húsnæðis Snorrastofu bókasafn og vinnuaðstaða annarra gesta og starfsmanna Snorrastofu.
  3. Leiguskilmálar
    Íbúðin er ekki leigð skemur en eina viku í senn. Leigan miðast við hádegi mánudag og til kl 17 sunnudag. Ekki lengur en til þriggja mánaða í senn. Í leigu er innifalinn kostnaður vegna hita, rafmagns og þráðlauss netsambands. Leiga skv. verðskrá greidd fyrirfram við bókun. Framleiga er ekki heimil.
  4. Umsóknir
    Sækja skal um dvöl í fræðimannsíbúðinni skriflega.  Í umsókn þarf að koma fram auk almennra upplýsinga um umsækjanda, að hverju viðkomandi hyggst vinna og hvaða tímabil sé heppilegast. Umsókn sendist annað hvort til forstöðumanns Snorrastofu eða sviðsstjóra Snorrastofu.
  1. Sambýlið við Snorrastofu
    Gestum ber að taka tillit til sambýlisins við aðra vinnuaðstöðu í húsinu og skrifstofur stofnunarinnar og gæta þess að vinnufriður haldist. Húsið skal ætíð vera læst þegar skrifstofa stofnunarinnar er lokuð.
  2. Afhending lykla
    Leigutaki skal hafa samband við skrifstofu Snorrastofu með fyrirvara svo unnt verði að ganga frá leigusamningi og ákveða tíma fyrir afhendingu á lyklum.
  3. Frágangur
    Leigutakar og gestir þeirra skulu ganga vel um íbúðina og skila í sama ásigkomulagi og þeir tóku við henni. Þrífa skal allt í eldhúsi, þar með talið ísskáp og eldavél, og ganga frá leirtaui . Baðherbergi skal þrífa vel, þurrka af húsgögnum, strjúka yfir gólf. Taka skal af rúmum og setja notaðan rúmfatnað, handklæði og diskaþurrkur í baðkar. Allt rusl skal setja í plastpoka áður en því er hent og ekki má safna því saman innan dyra lengi. Ekki er leyfilegt að hafa húsdýr í íbúðinni.
  4. Ábyrgð leigutaka
    Leigutaki ber ábyrgð á öllum búnaði í íbúðinni á meðan á dvöl hans stendur og skuldbindur sig til að bæta tjón sem verða kann af hans völdum eða þeirra sem dvelja á hans vegum í íbúðinni á dvalartímanum.
Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.