Bókakynning 25. nóvember 2026

Bókakynning

Bókakynning í Snorrastofu

 Fimmtudagskvöldið 3. desember kl. 20:00 verður bæði Prjóna-bóka-kaffi og bókakynning í Snorrastofu. Tveir rithöfundar lesa úr nýjum verkum sínum, fjalla um þau og svara fyrirspurnum: Guðrún Eva Mínervudóttir les úr skáldsögunni Ljósföður og Katrín Jakobsdóttir úr glæpasögunniVorblóti.

 Prjóna-bóka-kaffi Snorrastofu eru kvöldsamkomur með baðstofublæ undir forystu Gíslínu Jensdóttur, bókasafnsfræðings Snorrastofu. Þær eru haldnar hálfsmánaðarlega á fimmtudagskvöldum yfir veturinn í bókhlöðu Snorrastofu. Kvöldin eru fastur punktur í tilverunni hjá mörgum, enda nýtur fólk þess að hittast í notalegu umhverfi og spjalla saman. Í andrúmslofti bókhlöðunnar myndast skapandi samvera þar sem margt ber á góma og list- og verkmenning flyst á milli gesta. Fólk er hvatt til að koma með hannyrðir eða annað handverk. Kvöldin hafa reynst skemmtilegur vettvangur fyrir ýmiss konar frásagnir og fróðleik sem gestir miðla, og stundum er boðið upp á upplestur, örfyrirlestra eða myndasýningar.

 

Bókhlaðan er opin öllum til útlána þessi kvöld og nýta margir sér það.

Myndasafn

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.