Dagur Snorra Sturlusonar 21. september 2026

Dagur Snorra Sturlusonar

Snorrastofa verður með hátíð helgaða Snorra Sturlusyni í bókhlöðu sinni laugardaginn 26. september nk.

 Dagskráin, sem hefst kl. 14, verður tileinkuð goðafræði og sagnaskemmtan.

 Fyrirlestrar:

 Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu: Setning og stutt samantekt um útgáfu ritraðar um norræna goðafræði.

Ingunn Ásdísardóttir, þjóðfræðingur: Af jötnum.

Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands: Um guði og hetjur í sagnaskemmtun miðalda.

 Hlé

Terry Gunnell, þjóðfræðingur og prófessor emeritus:  Hlutverk og vettvangur Völuspár fyrr og nú: Hvernig breytist kvæðið í flutningi?

 Inn á milli verða sýnd myndbönd með áhugaverðum dæmum um miðlun á goðafræðinni, þ.e. brot úr sýningu Västanå teater á Eddu eftir Jon Fosse, flutningur Einar Selvik á broti úr Völuspá, og að lokum brot úr flutningi danska leikhópsins Republique á Völuspá.

 

Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Veitingar í hléi.

Myndasafn

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.