
Námskeið um konungasögur hefst næsta mánudag 5. október
„Konungasögur ritaðar í Borgarfirði “ er námskeið í höndum Óskars Guðmundssonar rithöfundar á vegum Snorrastofu, Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi og Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi. Konungasagnaritun Íslendinga á miðöldum náði hápunkti sínum á 13. öld í verkum Snorra Sturlusonar í Reykholti. Sögurnar eru einstakar heimildir um sögu norrænna þjóða og kallast bæði á við önnur verk Snorra (Eddu, Egils-sögu) sem og aðrar sögur á blómatíma íslenskra bókmennta. Snorri er talinn hafa fyrst ritað sérstaka sögu af Ólafi helga en hún hafi síðan verið felld inn í heildarverkið — Heimskringlu. Margt segir og af íslenskum höfðingjum og málefnum í þessum sögum. Á fyrirlestrarkvöldunum verður þess freistað að kynnast sagnaheiminum öllum, leggja sig eftir söguþræði og samhengi, ættirnar skyggndar og skoðaður texti út frá ýmsum sjónarhornum, sem og spilað eftir eyranu með gestum.
Hægt er að skrá sig á einstök kvöld með litlum fyrirvara. Allt námskeiðið kostar 19.900 kr. og stakt kvöld kostar 3.400 kr.
Skráning fer fram hjá Símenntunarmiðstöðinni, Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi s. 437 2390 simenntun@simenntun.is www.simenntun.is.
Myndasafn
Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu
Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi
Opnunartímar Gestastofu
1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00
1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.