Ritmenning íslenskra miðalda 23. ágúst 2019

Ritmenning íslenskra miðalda

Fimmtudagurinn 22. ágúst var hátíðlegur í Snorrastofu þegar forsætisráðherra, menntamálaráðherra og fulltrúar Stofnunar Árna Magnússonar og Snorrastofu undirrituðu samstarfsyfirlýsingu vegna rannsóknarverkefnisins, Ritmenning íslenskra miðalda. Áður hafði fjármálaráðherra undirritað skjalið. Snorrastofu er falin sú mikla ábyrgð að sjá um daglega umsýslu með verkefninu og kýs að túlka tímamót þessi sem viðurkenningu á starfi og reynslu undanfarinna ára.

Það voru ráðherrarnir Katrín Jakobsdóttir, Lilja Alfreðsdóttir, forstöðumaður Árnastofnunar Guðrún Nordal og formaður stjórnar Snorrastofu Björn Bjarnason sem undirrituðu yfirlýsinguna og ávörpuðu samkomuna þar sem saman var kominn allstór hópur fólks, sem beint eða óbeint tengist málefninu. Athöfnin fór fram í bókhlöðu Snorrastofu og að henni lokinni var haldið í Finnsstofu, innaf safnaðar- og sýningarsal byggingarinnar þar sem veitingar og andi viðburðarins sköpuðu ánægjulega samverustund.

Samstarfsyfirlýsingin

Á vef forsætisráðuneytisins segir um verkefnið:

"Verkefninu „Ritmenning íslenskra miðalda“ var formlega hleypt af stokkunum í dag. Þar er um að ræða verkefni til fimm ára en meginmarkið þess er að efla rannsóknir sem tengjast þeim stöðum á Íslandi þar sem ritmenning blómstraði á miðöldum. Rannsóknir þessar munu m.a. tengjast fornleifafræði, sagnfræði, textafræði og bókmenntafræði. Tilefni þessa er að nú eru 75 ár liðin frá stofnun lýðveldis á Íslandi.

Af þessu tilefni var undirrituð samstarfsyfirlýsing forsætisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Snorrastofu. Fór undirritunin fram í Reykholti í Borgarfirði þar sem Snorrastofa er starfrækt sem menningar- og miðaldasetur. Dagleg umsýsla með framvindu verkefnisins verður í höndum Snorrastofu.

Stefnt er að því að veita 35 milljónum kr. til þessa verkefnis í fimm ár frá og með árinu 2020. Mennta- og menningarmálaráðuneyti, sem fer með yfirstjórn þess, mun auglýsa eftir umsóknum um styrki og skipa úthlutunarnefnd þegar þær liggja fyrir. Úthlutunarnefndin gerir tillögur um úthlutun, í samstarfi við Rannís, til ráðherra mennta- og menningarmála sem tekur ákvörðun um úthlutun styrkja að höfðu samráði við forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra."

Í stjórn verkefnisins sitja þau Guðrún Nordal formaður, Ágúst Sigurðsson sveitastjóri Rangárþings ytra og Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður.

Sjá nánar um RÍM-verkefnið...

Myndir frá deginum (Guðl. Óskarsson)

Myndasafn

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.