
Söngfólk Viðars Guðmundssonar syngur inn jólin í Reykholtskirkju
Fimmtudaginn 20. desember sameinast söngfólk Viðars Guðmundssonar organista og kórstjóra um jóla-tónleika í Reykholtskirkju kl. 20:30.
Viðar stjórnar um þessar mundir 4 kórum: Reykholtskórnum, Freyjukórnum, Söngbræðrum og Kirkjukór Hólmavíkur.
Allir koma þessir kórar fram á fimmtudagskvöldið og með þeim leika Jón Bjarnason á orgel og píanó og Kristín Sigurjónsdóttir á fiðlu.
Einsöngvarar: Dagný Sigurðardóttir, Lára Kristín Gísladóttir og Snorri Hjálmarsson.
Aðgangseyrir er kr. 2000 fyrir fullorðna, ókeypis fyrir 12 ára og yngri.
Verið öll hjartanlega velkomin.
U
Myndasafn
Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu
Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi
Opnunartímar Gestastofu
1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00
1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.