Styrkjum úthlutað vegna verkefnisins Ritmenning íslenskra miðalda - RÍM 22. maí 2020

Styrkjum úthlutað vegna verkefnisins Ritmenning íslenskra miðalda - RÍM

Fréttatilkynning Snorrastofu:

Í tilefni þess að árið 2019 voru 75 ár liðin frá stofnun lýðveldis á Íslandi  ákváðu  forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Snorrastofu í Reykholti að taka höndum saman við þróun átaksverkefnis til fimm ára um þverfaglegar rannsóknir á ritmenningu íslenskra miðalda, skammstafað RÍM. Til að framfylgja verkefninu var stofnaður sjóður, sem nú hefur verið veitt úr. Markmiðið verkefnisins m.a. að efla rannsóknir á heimildum um ritunarstaði miðaldahandrita á Íslandi og þá sérstaklega á þeim lærdómsmiðstöðvum og klaustrum þar sem ritmenning blómstraði. Verkefnið skiptist í tvo verkþætti: Annars vegar að rannsaka menningarminjar og umhverfi þessara staða og hins vegar handrita- og bókmenningu þeirra.

Snorrastofu hefur verið falið að annast umsýslu RÍM-verkefnisins með sérstökum samningi, og miklar vonir eru bundnar við það. Stofnunin hefur því framkvæmd verkefnisins með höndum, þar með talið nauðsynlega eftirfylgni. Snorrastofa mun leggja metnað sinn í að leiða saman styrkþega á sérstökum samráðsfundum og málþingum í Reykholti. Þá er vonast til að hægt verði að fjármagna útgáfu bóka um einstaka þætti verkefnisins og að lokum stórt yfirlitsrit.

Á uppstigningardag, 21. maí s.l. fór fyrsta úthlutun sjóðsins fram og sá Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráherra um afhendingu styrkja við hátíðlega athöfn í Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti. Alls bárust 10 umsóknir um styrki, en sótt var um samtals 66,8 milljónir króna. Úthlutunarefndin veitti sex styrki og eru handhafar þeirra eftirfarandi: Elín Ósk Heiðarsdóttir fyrir hönd Fornleifastofnunar Íslands, 7 milljónir króna vegna verkefnisins „Staðarhóll í Dölum: Höfuðból í minjum, sögu og sagnaritun“, Steinunn Kristjánsdóttir fyrir hönd Háskóla Ísland, 7 milljónir króna vegna verkefnisins „Þingeyraklaustur: Hjarta ritmenningar í fjórar aldir“, Helgi Þorláksson fyrir hönd Oddafélagsins, 7 milljónir króna vegna verkefnisins „Oddarannsóknin“, Viðar Hreinsson fyrir hönd Náttúruminjasafns Íslands, 3,3 milljónir vegna verkefnisins „Náttúrur og fornar frásagnir. Um náttúru- og umhverfissýn íslenskra miðaldasagna“, Beeke Stegman fyrir hönd Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, 2,7 milljónir króna vegna verkefnisins „Bókagerð í Helgafellsklaustiri á fjórtandu öld“ og Axel Kristinsson og Árni Daníel Júlíusson, 3 milljónir króna vegna verkefnisins „Sögur og fylgdarmenn“.

Snorrastofa óskar styrkþegum til hamingju með styrkina og verkefnin. Stofnunin lítur á þetta framtak, sem mikinn styrk og viðurkenningu fyrir miðaldafræðin og íslenska menningu og að það auðveldi þekkingarleit, varðveislu og miðlun nútímans á menningarverðmætum þjóðarinnar.

Ávarp Björns Bjarnasonar við afhendingu styrkjanna 21. maí 2020

Sjá nánar um RÍM-verkefnið...

Myndir Guðl. Óskarsson

 

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.