„Á slóðum endurreisnarinnar“ (Renaissance Itineraries) 21. september 2022

„Á slóðum endurreisnarinnar“ (Renaissance Itineraries)

Frá lokum miðalda og fram eftir nýöld urðu afgerandi breytingar á evrópskri menningu með gríðarlegum landafundum og vísinda- og tækninýjungum af ýmsu tagi sem umbyltu heimsmynd álfunnar. Við fall Miklagarðs árið 1454, sem olli flótta menntamanna í vesturátt með tilheyrandi flutningi handrita, jókst aðgengi að fornmenntum Miðjarðarhafsins sem urðu með tímanum að ráðandi fyrirmynd í menningu og listum. Um 1600, ekki síst fyrir tilstilli Arngríms fróða, uppgötvuðu evrópskir lærdómsmenn fornar menntir norðurslóða, þar á meðal Noregskonunga sögur íslenska höfðingjans Snorra Sturlusonar, sem prentaðar voru og þýddar á ýmis mál. Undir lok tímabilsins tók Þormóður Torfason upp þráðinn frá miðöldum og ritaði á latínu sögu Norðurlanda og Atlantshafseyja á grundvelli íslenskra heimilda.

Norræna tengslanetið um endurreisnarfræði var stofnað í Róm árið 2011 og hefur þegar haldið ráðstefnur í höfuðborgum hinna Norðurlandanna.

Erindi á málþinginu flytja 40 fræðimenn frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Þýskalandi.

Allir fyrirlestrar á þinginu verða haldnir í Reykholti fimmtudaginn 29. september frá kl. 8 – 16:30 og eru opnir gegn 5000 króna ráðstefnugjaldi sem er greiðsla fyrir hádegismat, kaffi og meðlæti. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að skrá sig fyrir 27. september hjá Sigrúnu Þormar (sigrun@snorrastofa.is).

Verið öll hjartanlega velkomin!

Myndasafn

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.