
Dagur Snorra Sturlusonar
Bókhlaða
Snorrastofa verður með hátíð í bókhlöðu Snorrastofu tileinkaða Snorra Sturlusyni laugardaginn 26. september nk.
Dagskráin, sem hefst kl. 14, verður tileinkuð goðafræði og sagnaskemmtan.
Fyrirlestrar:
Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu: Stutt samantekt um gerð ritraðar um norræna goðafræði.
Ingunn Ásdísardóttir, þjóðfræðingur: Af jötnum.
Terry Gunnell, þjóðfræðingur og prófessor emeritus: Hlutverk og vettvangur Völuspár fyrr og nú: Hvernig breytist kvæðið í flutningi?
Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands: Um guði og hetjur í sagnaskemmtun miðalda.
Inn á milli verða sýnd myndbönd með áhugaverðum dæmum um miðlun á goðafræðinni, þ.e. brot úr sýningu Västanå teater á Eddu eftir Jon Fosse, flutningur Einar Selvik á broti úr Völuspá, og að lokum brot úr flutningi danska leikhópsins Republique á Völuspá.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Veitingar í hléi.


Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu
Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi
Opnunartímar Gestastofu
1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00
1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.