Frá rammri forneskju til kristins kóngs. Námskeið.
5. október 2015

Frá rammri forneskju til kristins kóngs. Námskeið.

Landnámssetur í Borgarnesi

Konungasögur ritaðar í Borgarfirði - Fyrsta námskeiðskvöld

Námskeið á vegum Snorrastofu, Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi og Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi. Konungasagnaritun Íslendinga á miðöldum náði hápunkti sínum á 13. öld í verkum Snorra Sturlusonar í Reykholti. Sögurnar eru einstakar heimildir um sögu norrænna þjóða og kallast bæði á við önnur verk Snorra (Eddu, Egils-sögu) sem og aðrar sögur á blómatíma íslenskra bókmennta. Snorri er talinn hafa fyrst ritað sérstaka sögu af Ólafi helga en hún hafi síðan verið felld inn í heildarverkið Heimskringlu. Margt segir og af íslenskum höfðingjum og málefnum í þessum sögum. Á fyrirlestrarkvöldunum verður þess freistað að kynnast sagnaheiminum öllum, leggja sig eftir söguþræði og samhengi, ættirnar skyggndar og skoðaður texti út frá ýmsum sjónarhornum, sem og spilað eftir eyranu með gestum.

Leiðbeinandi Óskar Guðmundsson rithöfundur í Véum

Samvinnuverkefni Snorrastofu, Landnámsseturs Íslands

og Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi

Hægt er að skrá sig á stök kvöld með litlum fyrirvara hjá Símenntunarmiðstöðinni Vesturlandi (http://simenntun.is).

Allt námskeiðið kostar kr. 19.900 og stakt kvöld kostar kr. 3.400.

 

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.