Fyrirlestrar í héraði: Haraldur konungur harðráði
9. júlí 2026

Fyrirlestrar í héraði: Haraldur konungur harðráði

Bókhlaða

Fimmtudaginn 9. júlí kl. 20 býður Snorrastofa upp á kynningu á rannsóknarverkefni um Harald harðráða Sigurðarson, Noregskonungs, í bókhlöðu Snorrastofu.

Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, mun kynna verkefnið með nokkrum inngangsorðum, en fyrirlesari kvöldsins verður dr. Gianluca Raccagni, dósent í sagnfræði við Háskólann í Edinborg.

Yfirskrift fyrirlesturs hans verður: „Harald Hardrada's romantasy and beast slaying tales in Byzantium: comparing European chronicles and Icelandic sagas“. Dr. Raccagni er dósent í sagnfræði miðalda við Háskólann í Edinborg, Skotlandi.


Dagskráin er öllum opin og er aðgangur ókeypis.

 

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.