
Fyrirlestur um Þórð Kristleifsson
Bókhlaða
Fyrirlestur um Þórð Kristleifsson – söngmann, kórstjóra og ljóðaþýðanda
Snorrastofa mun á Reykholtshátíð laugardaginn 25. júlí kl. 13 bjóða upp á fyrirlestur dr. Bjarka Sveinbjörnssonar tónlistarfræðings: „Hann vildi aldrei hætta við neitt hálfklárað, hann Þórður“. Um er að ræða hluta af viðburðaröðinni Fyrirlestrar í héraði.
Bjarki mun rekja söngnám Þórðar um sjö ára skeið í Þýskalandi og á Ítalíu. Þá verður fjallað um helstu viðfangsefnin eftir heimkomuna, skýrslugerð, söngkennslu, útgáfu söngkennslubóka og söng- og þýskukennslu á Laugarvatni. Þá verður sagt frá ljóðaþýðingum hans, kórstjórn og útgáfu kórbóka. Einnig verður greint frá ritstjórn og útgáfu Þórðar á tímaritinu Viðari, ársriti Héraðsskólanna. Leikin verða nokkur tóndæmi með lestri Þórðar og með Laugarvatnskórnum undir hans stjórn,
Dr. Bjarki Sveinbjörnsson tónlistarfræðingur hefur um 30 ára skeið safnað og miðlað heimildum um íslenska tónlistarsögu, bæði í kennslu, fyrirlestrum, greinabirtingu og útvarpsþáttum. Þá stóð hann að stofnun Tónlistarsafns Íslands sem í dag hefur aðsetur í Landsbókasafni Íslands.
Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu
Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi
Opnunartímar Gestastofu
1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00
1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.