Hluti fornsagnaþings  fer fram í Reykholti 14. ágúst 2018
14. ágúst 2018

Hluti fornsagnaþings fer fram í Reykholti 14. ágúst 2018

Önnur staðsetning

Sautjánda alþjóðlega fornsagnaþingið verður haldið í Reykjavík og Reykholti dagana 12.–17. ágúst 2018.

Yfirskrift þingsins verður Íslendingasǫgur, en til að minnast þess að árið 2018 verða liðin 900 ár frá upphafi lagaritunar á Íslandi verða lög og lagaritun undirþema þingsins.

Ráðstefnan verður í Snorrastofu í Reykholti þann 14. ágúst.

 Alþjóðlega fornsagnaþingið er haldið þriðja hvert ár og það sækja fræðimenn og nemendur hvaðanæva úr heiminum. Fyrsta þingið var haldið í Edinborg 1971, en síðan þá hefur það verið haldið á ólíkum stöðum um veröld víða, allt frá Akureyri í norðri (1994) suður til Sydney í Ástralíu (2000).

Yfirlit um fyrri fornsagnaþing og margvíslegt efni frá þeim er að finna á The International Saga Conference Archive (www.sagaconference.org )

Undirbúningsnefnd 17. alþjóðlega fornsagnaþingsins 2018 skipa:

 Aðalheiður Guðmundsdóttir

Ármann Jakobsson

Bergur Þorgeirsson

Gísli Sigurðsson

Guðrún Nordal

Guðvarður Már Gunnlaugsson

Terry Gunnell

Haraldur Bernharðsson

Jóhanna Katrín Friðriksdóttir

Emily Lethbridge

Margrét Guðmundsdóttir

Sif Ríkharðsdóttir

Svanhildur Óskarsdóttir

Torfi Tulinius

Viðar Pálsson

Þórdís Edda Jóhannesdóttir

Þórður Ingi Guðjónsson

Heimasíða þingsins: www.fornsagnathing2018.hi.is

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.