Holts Saga
10. nóvember 2026

Holts Saga

Bólkhlaða

Holts saga í Snorrastofu 

Þriðjudaginn 10. nóvember kl. 20 mun Óskar Guðmundsson, rithöfundur í Reykholti, kynna nýútkomna bók sína, Holts sögu – Þúsund ára sögu mannlífs undir Eyjafjöllum, klerka, kvenna og karla. Viðburðurinn fer fram í bókhlöðu Snorrastofu og er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði“, sem nýtur styrks frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands og Borgarbyggð. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis, veitingar í hléi.

Holts saga er óvenju víðfeðm frásögn af mannlífi undir Eyjafjöllum í þúsund ár. Hér er ekki einungis horft af hlaði á kirkjustaðum Holti undir Eyjafjöllum, heldur er horft til allra þátta sem gera sögu að sögu, þar með taldir atvinnuhættir og þjóðhættir. Sagan ilmar af smáum og stórum ævintýrum. Eða einsog höfundurinn segir í aðfararorðum: Með sögu Holts er reynt að tengja saman víddir tímans; hestar og menn, fjöll og fjara, bylting og afturhald, galdrar og góðkvendi, þjóðhættir og þjóðsögur, hvaðeina fær sitt rými í samhangandi sögu sem hefur Holt undir Eyjafjöllum að miðlægum frásagnarpunkti.

Holts Saga

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.