Hotti frá Húsafelli
29. mars 2026

Hotti frá Húsafelli

Héraðsskólinn Reykholti

 

Til heiðurs Hotta frá Húsafelli

Snorrastofa og áhugafólk um borgfirsk fræði boða til samkomu í gamla Héraðsskólanum í Reykholti sunnudaginn 29. mars kl. 15-17 undir yfirskriftinni Til heiðurs Hotta frá Húsafelli. 

Dagskráin er helguð Þorsteini Þorsteinssyni (1925-2025) lífefnafræðingi og fræðimanni frá Húsafelli, sem gekk undir heitinu Hotti meðal ættingja og vina. Dagskráin verður í tali og tónum, sagðar sögur og farið með kvæði – Dagskrárstjórn annast Þorsteinn Björnsson, doktorsnemi í íslenskum fræðum – og sonarsonur Hotta.

  Dagskrá:

1) Svipmyndir úr Skessuhorni – þættir í minningu fræðimanns 7. janúar 2025.

  • Borgfirsk söng- og kvæðahefð (söfnun Kristleifs Þorsteinssonar fræðimanns á Stóra- Kroppi, Snorri á Húsafelli, Kobbi, alþýðukveðskapur), með áherslu á druslukveðskap. Málflytjandi Þorsteinn Björnsson og nýtur aðstoðar Karls Friðriks Hjaltasonar við söng- og kvæðadæmi.

Kaffihlé – Gamlar myndir – Brugðið upp gömlum myndum frá húsfellsku umráðasvæði – myndir á sýningartjaldi – einnig við einstaka dagskrárliði.

  • Á vængjum tónlistar: Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Viðar Guðmundsson, og Sigrún og Sigríður Þorsteinsdætur.
  • Frásagnamaðurinn Þorsteinn Þorsteinsson á hljóðupptökum frá 2021–2025
  • Dagskrá slitið: Þorsteinn Björnsson

Að lokinni dagskránni, sem er opin öllum, verður boðið upp á veitingar.

 

 

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.