Konungasögur ritaðar í Borgarfirði - námskeiðskvöld 11. janúar 2016
11. janúar 2016

Konungasögur ritaðar í Borgarfirði - námskeiðskvöld 11. janúar 2016

Landnámssetur í Borgarnesi

Horft í kringum meginsögu Heimskringlu - Ólafs saga helga, fyrri umræða

Leiðbeinandi Óskar Guðmundsson

Námskeið á vegum Snorrastofu, Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi og Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi. Konungasagnaritun Íslendinga á miðöldum náði hápunkti sínum á 13. öld í verkum Snorra Sturlusonar í Reykholti. Sögurnar eru einstakar heimildir um sögu norrænna þjóða og kallast bæði á við önnur verk Snorra (Eddu, Egils-sögu) sem og aðrar sögur á blómatíma íslenskra bókmennta. Snorri er talinn hafa fyrst ritað sérstæða sögu af Ólafi helga en hún hafi síðan verið felld inn í heildarverkið Heimskringlu. Margt segir og af íslenskum höfðingjum og málefnum í þessum sögum. Á fyrirlestrarkvöldunum verður þess freistað að kynnast sagnaheiminum öllum, leggja sig eftir söguþræði og samhengi, ættirnar skyggndar og skoðaður texti út frá ýmsum sjónarhornum, sem og spilað eftir eyranu með gestum. Hægt er að sækja stök kvöld og greiða sérstaklega.  Allt námskeiðið kostar kr. 19.900 og stakt kvöld kostar kr. 3.400.

Skráning fer fram hjá Símenntunarmiðstöðinni á Vesturlandi Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi, sími 437-2390 (simenntun@simenntun.is).

 

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.