Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson
27. september 2022

Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson

Bókhlaða Snorrastofu

Harðmúlaðr er Skúli.pdf

Snorri Sturluson var í Noregi á árunum 1218–1220 eftir því sem Íslendinga saga Sturlu Þórðarsonar segir. Þar varð hann hirðmaður Skúla jarls Bárðarsonar, sem fór þá með landsstjórnina og Hákonar Hákonarsonar konungs. Flutti hann jarlinum tvö lofkvæði og fékk skip og fimmtán aðrar stórgjafir að launum. Snorri tók að sér að koma á friði milli norskra kaupmanna og Íslendinga en kaupmenn höfðu drepið Orm Jónsson, fósturbróður Snorra, og Jón son hans í Vestmannaeyjum. Björn Þorvaldsson, tengdasonur Orms, var ekki ánægður þegar hann frétti af loforði Snorra um milligönguna enda vildi hann fá rétt sinn gagnvart kaupmönnum og taldi að Snorri mundi standa í veginum. Hæddust hann og stuðningsmenn hans að Snorra og fengu mann til að snúa út úr stefinu í öðru lofkvæði Snorra. Útúrsnúningurinn lét í veðri vaka að samband Snorra og jarlsins hefði verið of náið, jafnvel kynferðislegt, og dró auk þess dár að kvæðinu og taldi skáldfíflahlut. Í fyrirlestrinum verður fjallað um þessa níðvísu út frá hugmyndum 13. aldar um karlmennsku.

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.