
Upplestur ljóða í Snorrastofu
Bókhlaða
Upplestur ljóða í Snorrastofu
Laugardaginn 13. júní kl. 14:00 verður boðið upp á upplestur ljóða ásamt borgfirskum fróðleik í bókhlöðu Snorrastofu. Þar munu fimm ljóðskáld lesa úr verkum sínum.
Dagskráin er eftirfarandi:
Garibaldi (Garðar Baldvinsson) hefur dagskrána með stuttu erindi um langömmu sína sem bjó lengstum í Borgarfirði og fæddi þar átta börn en aðeins tvö lifðu.
Anna Björg Hjartardóttir, sem vann til verðlauna í ljóðasamkeppni Ljósberans 2023. Hún hefur áhuga á heimspeki og heldur fyrirlestra um friðarmál og búddisma. Hún er virk í alþjóða friðar-, menntunar og menningarsamtökum Soka Gakkai Int.
Eyrún Ósk Jónsdóttir, sem gaf út fyrstu ljóðabók sína 16 ára en hefur síðan sent frá sér margar ljóðabækur, skáldsögur og myndskreyttar barnabækur. Hún er menntuð í evrópskri leiklist og fjölmiðlun. Eyrún hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2016 fyrir ljóðabók sína Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa. Nýjasta bók hennar, Stórsæ stjarnfræðileg fyrirbæri – og önnur málefni hjartans, kom út 2022.
Margrét Lóa Jónsdóttir, sem hlaut í fyrra Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir 12. ljóðabók sína, Pólstjarnan fylgir okkur heim. Fyrsta ljóðabók Margrétar, Glerúlfar, kom út 1985. Margrét Lóa hefur gefið út skáldsögu og þýtt ljóð, einkum úr spænsku. Einnig hefur hún starfrækt listagalleríið Marló og bókaútgáfu með sama nafni. Margrét Lóa hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ljóðagerð sína.
Ragnheiður Lárusdóttir, sem hlaut árið 2020 Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina 1900 og eitthvað en í fyrra kom út bókin Veður í æðum sem er safnbók og inniheldur allar þær fjórar bækur sem hún hefur gefið út til þessa. Í nýju bókinni yrkir Ragnheiður um þá sáru reynslu að horfa á dóttur sína lenda í fjötrum fíknar – en líka um þá töfra tilverunnar sem umlykja okkur og vonina sem glóir víða.
Garibaldi, sem hóf dagskrána, hefur ort ljóð í áratugi. Hann mun kynna ljóðabók sína Þagnafár, en ljóðin sýna líf föður skáldsins og flótta hans frá áföllum í bernsku sem brjótast fram þegar hann jarðsetur yngsta son sinn. Ljóðin lýsa magnþrungnum harmi og tekur myndmálið mið af hrikalegri náttúru á Hornströndum þar sem faðir hans ólst upp. Í bókinni sjötíu bragandi dúfur frá 2024 fjallar Garibaldi um samband sitt við yngsta bróður sinn sem er jarðsettur í Þagnafári.
Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu
Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi
Opnunartímar Gestastofu
1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00
1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.