Valgerður Jóns - Music a la Vala: Tónar og ljóð í Reykholtskirkju
28. maí 2021

Valgerður Jóns - Music a la Vala: Tónar og ljóð í Reykholtskirkju

Reykholtskirkja

Föstudagurinn 28. maí 2021 kl. 21:00

Valgerður Jónsdóttir, tónlistarkona frá Akranesi, á að baki langan og fjölbreyttan feril í tónlistinni og á orðið mikið safn laga og texta sem hún hefur samið gegnum tíðina.

Á dagskrá tónleikanna í Reykholtskirkju í Borgarfirði, verður fjölbreytt blanda af tón- og textasmíðum Valgerðar en hún hefur bakgrunn í klassískri tónlist sem og popp og þjóðlagatónlist og endurspeglast þessi áhrif í tónlist hennar. Valgerður syngur og leikur á píanó/gítar en með sér á tónleikunum hefur hún frábæran hóp samstarfsfólks sem hún hefur unnið með áður við ýmis tónlistartengd verkefni. Þá verða flutt nokkur íslensk þjóðlög í bland við frumsömdu lögin, en Valgerður starfrækir ásamt fjölskyldu sinni verkefnið „Travel Tunes Iceland“ sem snýst um að flytja og kynna íslensk þjóðlög fyrir ferðafólki.

Viðburðurinn hlaut menningarstyrk frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands 2021.

Með Valgerði á tónleikunum leika:

Þórður Sævarsson gítar

Sylvía Þórðardóttir harmonikka, ukulele og söngur

Sveinn Arnar Sæmundsson píanó

Arnar Óðinn Arnþórsson trommur

Sveinn Rúnar Grímarsson bassi

Miðasala: https://tix.is/.../tonar-og-ljo-valger-ur-jonsdottir-og.../

Myndasafn

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.