Velkomin á Snorrahátíð 15. júlí kl. 14
15. júlí 2017

Velkomin á Snorrahátíð 15. júlí kl. 14

Önnur staðsetning

70 ár  frá afhendingu Snorrastyttu Vigelands.

Snorrastofa í Reykholti býður til afmælishátíðar laugardaginn 15. júlí 2017 kl 14 í Reykholti – en í þeim mánuði eru liðin 70 ár frá afhendingu Snorrastyttunnar sem Norðmenn gáfu Íslendingum.

Dagskrá við Snorrastyttu kl. 14

  1. Reykholtsstaður heilsar

    – Sr. Geir Waage

  2. Setning hátíðar

    – Ólafur Ragnar Grímsson fyrrv. forseti Íslands

  3. Cecilie Landsverk sendiherra Noregs ávarpar gesti
  4. Foreningen Snorres venner

    – Kim F. Lingjærde formaður

  5. Saga Snorrastyttu – styttan í vitund tveggja þjóða

    – Óskar Guðmundsson

  6. Ávarp

    – Björn Bjarnason formaður stjórnar Snorrastofu

  7. Sögusýning opnuð í Reykholtsskóla, Snorrahátíðin 1947 í lifandi myndum - og sjötugur hljóðheimur.

    – Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu

Reykholtskórinn syngur norsk og íslensk ættjarðarlög undir stjórn Viðars Guðmundssonar / Lúðraþytur í höndum Baldvins Oddssonar og Odds Björnssonar / Veitingar í sölutjaldi frá kl. 12:30

Fullyrða má að einhver merkasti viðburður í sögu héraðsins á seinni tímum hafi verið afhending Snorrastyttunnar í júlímánuði 1947 – en þá var haldin fjölmennasta þjóðhátíð í sögu héraðsins.  Hátíðarhöldin 1947 voru  í  undirbúningi í áratugi – og var ótrúlega mikið við haft, þjóðhöfðingjar og ríkisstjórnir Íslands og Noregs tóku þátt í hátíðarhöldunum og talið er að á milli 10 og 14 þúsund manns hafi komið í Reykholt til að taka þátt í hátíðinni sem markaði djúp spor í menningarvitund þjóðarinnar. Nú þegar 70 ár eru liðin frá því að styttan af Snorra Sturlusyni eftir norska myndhöggvarann Gustav Vigeland var afhjúpuð við fjölmenna  og virðulega athöfn, í júlímánuði 1947 er því verðugt tilefni til afmælishátíðar – og sögusýningar.

Viðburðirnir 1947 fóru fram undir styrkri stjórn Snorranefnda – þeirri i Noregi þar sem Ólafur krónprins var heiðursforseti og íslensku Snorranefndinni með formönnum flestra stjórnmálaflokkanna.  Stór hópur Norðmanna kom til landsins af þessu tilefni; herskip og farþegaskip – leiðtogar úr norsku þjóðlífi og ástríðufullir aðdáendur Snorra Sturlusonar.

Á 70 árum hefur íslenskt þjóðfélag gjörbreyst – og það er einkar fróðlegt að kynna nútímafólki aðstæður og málafylgju frá þeim tíma sem styttan af Snorra Sturlusyni lagði af stað útí heiminn og þartil henni var komið á stöpul. En sjálf hátíðin var ekki síður eftirminnileg – og þótti ævintýri hversu vel Borgfirðingum tókst að sviðsetja hana á fögrum júlídegi árið 1947. Sjötíu árum síðar rifjum við upp þá sögu á sýningu – í máli og myndum  í gamla héraðsskólanum. Við styttuna er fyrirhuguð hátíðardagskrá sem hefst stundvíslega kl. 14. Dagskráin er ofin saman með ýmsum þáttum.

Ljósmynd Valgarð Krisjánsson

Myndasafn

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.