Borgfirðinga sögur – lokakvöld
2. maí 2017

Borgfirðinga sögur – lokakvöld

Bókhlaða Snorrastofu

Óskar Guðmundsson rithöfundur í Véum

Þriðjudaginn 2. maí verður lokakvöld námskeiðsins um Borgfirðinga sögur. Fjallað verður um Heiðarvíga sögu og Gísls þáttr Illugasonar.

Óskar Guðmundsson rithöfundur rýnir í tengsl og togar í rætur sagnanna og Snorrastofa hvetur alla til að nýta sér einstakt tækifæri til að njóta góðrar kvöldstundar.

Allir eru velkomnir og nægilegt er að skrá sig á staðnum. Kvöldið kostar 3.400 kr. fyrir þá, sem ekki eru þegar skráðir.

 

Á námskeiðinu hefur verið fjallað um Borgfirðinga sögur (aðrar en Eglu) á fjórum þriðjudagskvöldum í febrúar–maí 2017, til skiptis í Landnámssetri og Snorrastofu. Óskar Guðmundsson rithöfundur í  Véum flytur fyrirlestra með hefðbundnu sniði – og efnt  er til umræðna meðal þátttakenda.  Þótt sögurnar séu ekki meðal þekktustu Íslendinga sagna, þá búa þær allar yfir sögulegum þokka – og hafa að sviði hið víðfeðma goðaveldi Snorra Sturlusonar. Engu að síður eru sögurnar innbyrðis ólíkar.

Námskeiðið allt kostar kr. 13.500 og hægt verður að skrá sig á stök kvöld fyrir kr. 3.500

Skráning fer fram á vef Símenntunarmiðstöðvarinnar í Borgarnesi eða í s.: 437 2390 - ennfremur á námskeiðskvöldunum sjálfum.

Nánar um námskeiðið… 

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.