Námskeiðið Borgfirðinga sögur – rætur reifaðar og rýnt í tengsl
7. febrúar 2017

Námskeiðið Borgfirðinga sögur – rætur reifaðar og rýnt í tengsl

Landnámssetur í Borgarnesi

Fyrsta kvöld: Hænsa Þóris saga. Leiðbeinandi Óskar Guðmundsson rithöfundur.

Á námskeiðinu verður fjallað um Borgfirðinga sögur (aðrar en Eglu) á fjórum þriðjudagskvöldum í febrúar - maí 2017, til skiptis í Landnámssetri og Snorrastofu. Óskar Guðmundsson rithöfundur í  Véum flytur fyrirlestra með hefðbundnu sniði – og efnt  er til umræðna meðal þátttakenda.  Þótt sögurnar séu ekki meðal þekktustu Íslendinga sagna, þá búa þær allar yfir sögulegum þokka – og hafa að sviði hið víðfeðma goðaveldi Snorra Sturlusonar. Engu að síður eru sögurnar innbyrðis ólíkar.

Námskeiðið allt kostar kr. 13.500 og hægt verður að skrá sig á stök kvöld fyrir kr. 3.500

Skráning fer fram á vef Símenntunarmiðstöðvarinnar í Borgarnesi eða í s.: 437 2390 - einnig á námskeiðskvöldunum sjálfum.

Nánar um námskeiðið... 

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.