Prjóna-bóka-kaffi
17. október 2019

Prjóna-bóka-kaffi

Bókhlaða Snorrastofu

Notalegar kvöldstundir í bókhlöðunni við hannyrðir, spjall og kaffisopa.

Athugið að Prjóna-bóka-kaffið verður fellt niður vegna veirufaraldursins 19. mars, 2. apríl, 16. apríl og 30. apríl á yfirstandandi ári, 2020, sjá fréttatilkynningu Snorrastofu 12. mars...

Prjóna-bóka-kaffið verður hálfsmánaðarlega á fimmtudagskvöldum í vetur og er öllum opið. Safnið er opið til útlána og gestir eru hvattir til að koma með uppskriftir og hugmyndir að hvers kyns handverki. Auk þess hafa kvöldin reynst góður vettvangur fyrir þá, sem hafa frá einhverju fróðlegu og skemmtilegu að segja eða vilja kynna viðfangsefni sín og hugðarefni á annan hátt.

Verið öll velkomin

Myndasafn

Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu

Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi

Opnunartímar Gestastofu

1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00

1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.